Hver erum við hjá
Eskimo travel

Frábæra teymið okkar

Láttu okkur sjá um ferðina ykkar!
Hver erum við?

Við hjá EskimoTravel höfum áralanga reynslu í skipulagi á ferðum og upplifunum fyrir hópa af ýmsum stærðum og gerðum. Síðustu ár hefur áherslan verið á árshátíðar ferðir erlendis fyrir fyrirtæki sem og útskriftarferðir fyrir háskóla og framhaldsskóla. Einnig bjóðum við upp á ýmsar sérferðir tengdar íþróttum eða áhugamálum og námsferðir fyrir kennara (leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla).
Við leggjum mikinn metnað í það að gera upplifunina sem skemmtilegasta fyrir hópana okkar og bjóðum uppá mun meira en bara flug og hótel.
Þegar hópurinn er komin erlendis bjóðum við upp á ýmsa afþreyingu og gerum þannig áfangastaðina enn skemmtilegri með ferðum, námskeiðum eða öðru sem hópurinn hefur áhuga á. Það fer eftir gerð hópsins hvað er í boði hverju sinni hvort það eru golfferðir, heimsókn á vínekrur, bruggverksmiðjur, hjólaferðir, matarsmakk eða menningarrölt svo eitthvað sé nefnt!
“Láttu okkur sjá um allt frá A-Ö”
Þið fáið heildarpakkann hjá okkur

Persónuleg þjónusta og gott utanumhald
Gisting
Ótal möguleikar
Flug
Engum flugfélögum háð
Fararstjórn
Gerir ferðina skemmtilegri
Afþreying
Frábærar upplifanir
